Álfheimar 56-60 er hefðbundið steinsteypt hús. Í húsinu eru skráðar 28 íbúðir í 3 stigagöngum og var það fullbyggt skv. fasteignaskrá árið 1960 og er húsið því um 64 ára gamalt. Fjölbýlishúsið hannaði Sigvaldi Thordarson.
Í viðhaldsframkvæmdunum var ákveðið að notast við hina þekktu ”Sigvaldaliti” sem setja mikinn svip á húsið. Sigvalda höfum við gert skil áður í umfjöllun um Skaftahlíð 30 (2017) og Fellsmúla 26 (2020). Sigvaldi lauk sveinsprófi í húsasmíði árið 1934 og að lokinni síðari heimsstyrjöld lauk hann námi í arkitektúr frá Listaháskólanum í Kaupmannahöfn. Auk ofangreindra húsa eftir Sigvalda má nefna Ægisíðu 80, Skaftahlíð 12-22 og Hallveigarstaði. Sigvaldi lést árið 1964, aðeins 52 ára gamall.
Í nýloknum framkvæmdum var ráðist í umtalsverðar endurbætur á ytra byrði hússins. Helst má þar nefna múr- og steypuviðgerðir, endurnýjun á gluggum og hurðum hússins og málun á ytra byrði.
Verktakar framkvæmdanna við Álfheima 56-60 voru Þaktækni ehf en við hjá Verksýn unnum að undirbúningi þeirra og höfðum umsjón og eftirlit með framkvæmdunum fyrir hönd húsfélagsins.