Umsjón og eftirlit með framkvæmdum
Umsjón og eftirlit með viðhaldsframkvæmdum og nýbyggingum er ein af meginstoðum í rekstri fyrirtækisins. Verksýn ehf. leggur áherslu á að hafa gott skipulag og reglu á eftirlits- og umsjónarhlutverki sínu. Unnið er eftir gæðakerfi sem fyrirtækið hefur þróað með sér og uppfært. Lögð er áhersla á að hafa góða samvinnu við verkkaupa, en umsjónar- og eftirlitsmaður vinnur í umboði verkkaupa sem hans fulltrúi og ráðgjafi í verklegum framkvæmdum. Hlutverk eftirlitsmannsins er m.a. að veita verktaka nauðsynlegt aðhald við verklega framkvæmd og dagleg umsýsla um viðkomandi framkvæmd.
Helstu atriði sem innifalin eru í umsjónar- og eftirliti Verksýnar eru þessi:
- Farið er yfir að ábyrgir meistarar séu skráðir á viðeigandi verkliði.
- Farið yfir allar tryggingar verktaka.
- Gerð verksamninga.
- Rýnifundir og undirbúningur verks ásamt fulltrúum verktaka.
- Yfirfara tæknilegar upplýsingar yfir þau efni sem verktaki hyggst nota við verkið og samþykkja eða synja þeim.
- Yfirfara verkáætlun verktaka, samræma hana og samþykkja.
- Gerð greiðsluáætlana.
- Ferðir á verkstað 3 – 6 sinnum í viku, til að sjá um að fylgt sé verklýsingum og útboðsgögnum.
- Yfirferð fyrirliggjandi verkþátta með verktaka og úrlausn óvissuatriða.
- Tæknileg ráðgjöf við úrvinnslu framkvæmdar.
- Mælingar á magntölum og eftirlit með umfangi framkvæmda.
- Eftirlit með framgangi framkvæmda.
- Yfirferð dagsskýrslna.
- Eftirlit með umgengni á vinnustað.
- Stjórn verkfunda með verktaka og fulltrúa (fulltrúum) verkkaupa á einnar til tveggja vikna fresti.
- Ritun fundargerða á verkfundum og frágangur og fjölföldun þeirra eftir fundi.
- Yfirferð reikninga frá verktaka og samanburður við magntölur.
- Sinna öllum ábendingum og spurningum frá fulltrúum verkkaupa og verktaka.
- Umsjón með hlutaúttektum og lokaúttekt, og ritun úttektaryfirlýsinga.
- Samskipti við byggingaryfirvöld og hönnuði.
