Við tökum að okkur umsjón með viðbyggingum og breytingum fasteigna
Við tökum að okkur umsjón með viðbyggingum og breytingum fasteigna og sérhæfum okkur í að þjónusta eigendur með slík verkefni. Dæmi um slík verkefni:
- Einbýlishús.
- Fjöleignahús.
- Verslunar- og þjónustuhúsnæði.
- Frístundahús.
Ferli viðbygginga og breytinga – frá hugmynd og að lokaúttekt – getur verið flókið og margþætt. Erfitt getur verið að átta sig á kostnaði fyrirfram, en slíkar framkvæmdir geta bætt nýrri vídd við fasteignir og þjónað margvíslegum tilgangi fyrir eigendur.
Okkar helstu störf í þessum verkefnum eru t.d.:
- Afmörkun verkefna og greining á möguleikum til viðbygginga eða breytinga á upphafsstigum.
- Deiliskipulagsbreytingar eftir þörfum.
- Aðaluppdrættir.
- Burðarþols- og lagnateikningar.
- Reyndarteikningar.
- Útboð verkframkvæmda.
- Byggingarstjórnun.
- Verkefnastjórnun.
Reynsla okkar af verkefnum við eldri fasteignir nýtist viðskiptavinum okkar vel í þessum verkefnum. Í sumum tilvikum samtvinnast viðbyggingar og breytingaverkefni við viðhalds- og endurbótaverkefni. Við eigum gott samstarf við arkitekta og innanhússhönnuði og fögnum aðkomu þeirra.